19. október 2007 klukkan 16:58
Ég er svo mikill asni.. löngu búin að blogga.. en seifaði það bara á tölvuna til að geta klárað að skrifa (var eitthvað bissí). Gleymdi því svo! En allavega.. ég laga það bara aðeins til ;)
Dísa til hamingju með ammlið!
Anyway..
Ég eeelllska að hjóla.. þabbara snilld :)
Fórum nýlega og keyrðum í nágrenni Kleifarvatns og spóluðum þar aðeins (enginn ólöglegur utanvegarakstur samt!!). Það var heví nice :)
Svo fórum við einhverja helgina hjá Heiðmörk og þar einhverjar stíga og malarvegi. Eitt af því skemmtilegra sem ég geri er að bruna í polla og fá gusurnar upp við hliðarnar á sér! Ennn ég hefði alveg mátt slaka aðeins á þegar það kom þvílíkur pollur, alveg viss um að hann hafi verið nokkrir metrar og náði mér uppá sköflung, því ég rann á aðra hliðina og hjólið ofan í pollinn og önnur hliðin á mér.. Náði samt að bjarga mér ótrúlega vel því að ég fann að ég var að detta þannig að ég sveigði upp að brúninni og klifraði einhvernveginn uppá hana (sem var samt ekki lengi því ég óð útí að bjarga hjólinu :) Reiddi það svo áleiðis (það var svo mikil drulla að ég sökk nánast niður bara) að enda pollsins þangað til Johnny kom og tók við :)
Enduðum svo á að hjóla uppað Hvaleyrarvatni, nóg af bílum og fólk að grilla, geggjað veður! :)
Fór svo á FH ballið, drullu gaman, náði samt bara að sjá 2 lög með Bubba en Paparnir voru auðvitað geggjaðir! Var þar með Ingu og Höffu, hitti Grjóna og jah.. mömmu (???) og það var auðvitað nóg af fólki þarna sem maður þekkti :) Vorum þarna til 3 .. löbbuðum heim :)
Hafdís búin að eignast lilta systir! Súrrealískt eða hvað??? Fékk að halda á litlu, skrítið en geggjað :)
eBay ætlar að útvega mér Canon 400D. Ætla loksins að láta verða af því. Hjólið komið, núna get ég fjárfest í myndavél loksins :) Draumur hans afa að rætast! Hehe... búinn að ýta á eftir mér og hneykslast yfir því að ég sé ekki búin að fá mér fyrir löngu (auk þess er hann hneykslaður yfir því að hann sé ekki búinn að fá að prófa hjólið ;) Afi netti...
Núna er ég alveg veik í vél, held það sé eftir að hafa farið í sveitaferðina í sumar (vikuferðin mikla). Hefði getað tekið trilljón og eina mynd í ferðinni! Ullaði bara á fólk sem ég sá vera að mynda eitthvað sniðugt!
Mig langar samt ennþá til London! Komast aðeins burt! Það verður bara að bíða, fer bara og ræni smá jólaanda frá þessum englendingum :) Vá maður, sorry með alla broskallana :)
Síjú leiter alígeiter.
Mía litla. In luv ;*.

Ég og hjólin við Kleifarvatn
Fríða María Reynisdóttir
20. september 2007 klukkan 11:24
Er að verða geðveik á kvefi... fyrst var það ofnæmið í sumar sem gaf mér krónískt stífl-í-nef. Núna nældi ég mér í þessa flensu sem er búið að hrjá alla í kringum mig.. var búin að losa mig við hluta af því en neinei, þá ákvað hóstinn að láta sjá sig!
Síðasta vika var ein sú versta á minni ævi. Byrjaði á því verða veik á föstudaginn í þarsíðustu viku.. var ógeðslega slöpp og svo fékk ég óvæntan glaðning í hádeginu á laugardeginum. Bjöllunni var dinglað og það var baunað í mig .. "Hæ öhh... ég held ég hafi bakkað á bílinn þinn" GREIT! Ekki nóg með að frambrettið var ónýtt heldur ákvað hann að fara í fýlu og startar sér ekki heldur. Þurfti að draga hann upp á Bílaspítala og þar er hann enn... Núna er ég búin að vera bíllaus í næstum viku og ég er að verða geðveik! Fæ ekki bílaleigu bíl strax og allt í volli. Pity please?
Ég er ekkert bitur útí lífið neitt neinei :)
Mig langar bara að fara til útlanda í frí ... helst í mánuð en vika getur líka dugað, hver vill vera memm?
Farin að væla í tryggingunum, verkstæðinu, skólanum og sjálfri mér.. síjú later.
(Ekki gleyma því að ég (og sæti<3) á afmæli á miðvikudaginn 26. sept.). 

Hjólið mitt <3
Fríða María Reynisdóttir
04. ágúst 2007 klukkan 12:45
Ef þið farið eftir því sem þið viljið, hlustið ekki á það sem öðrum finnst og eruð þar sem ykkur líður best, þá getið þið auðveldlega látið drauma ykkar rætast. Stattu á þínu og þú verður jafn ánægð/ur og ég er í dag :)
Fríða María
Fríða María Reynisdóttir
29. júní 2007 klukkan 16:58
Náði bóklega prófinu með 3 villur af 7 mögulegum (eða þið vitið...) Byrjuð í verklegum tímum, reyndar á plani að keyra í gegnum keilur en það er meira tricky en maður heldur

Köben var góð, geggjað veður og læti!
Ég og Johnny erum svo á leiðinni með tjaldvagn að elta sólina í viku :)
Þannig að við bara sjáumst!
Fríða María Reynisdóttir
04. júní 2007 klukkan 18:28
Jeg skal rejse til Danmark på onsdag.. liggeliggelå 
Bærinn, Tívolí, FíntÚtAðBorða, Bakken og ábyggilega smá djamm og djús..! Á ekki eftir að sakna neins, ég er búin að bíða svo lengi eftir að komast burt! (Jú ég lýg.. ég á eftir að sakna þín kjáninn þinn).
Fyrsta skipti sem ég er örlí í að pakka niður.. en það er líka bara af því ég er í fríi í dag.. eða svona næstum því. Á bara eftir að ná í smá gjaldeyri, ætla ekki að stóla á kortið!
Búin að bóka bóklega bifhjólaprófið :) Soon...
Var að finna vegabréfið sem ég er ekki búin að nota lengi. Myndin af mér er .. einstaklega sérstök.
FRA 8
ÍSL 8
STÆ 7
ENS 6
FJÖ 5
ÍÞR 5
SKS 9
Skítsæmilegt.. Óánægðust með fimmuna í íþróttum og sexuna í enskunni. Annars fínt að hafa náð öllu..
Bið eiganda Harley V-rod á Hjallabrautinni að vinsamlegast fjarlægja það úr augsýn frá glugganum mínum áður en ég hleyp og stel því.
Kíkti á Deep Purple og Uriah Heep um daginn.. góðir tónleikar og alltaf geðveik upplifun að fara og sjá góðar hljómsveitir svona live. Hef gert þetta allt of sjaldan :/ Bubbi var líka góður í gær.. Töffari og hann veit það.
Hinrik skrifaði fyrir mig American Chopper og Nitro Circus á disk. Travis Pastrana er unf****** believable. Þessir gæjar gera hvað sem er en lifa það alltaf af. Ég skil ekki? Reyndar náði Pastrana að hálsbrjóta mömmu sína einhverntímann (sel það ekki dýrara en ég keypti það). Svo eru Orange County Choppers hjólin alltaf jafn nett!
Huxa að enduro verði fyrir valinu...
C'ya

Fríða María Reynisdóttir
14. maí 2007 klukkan 13:39
We believe life is what you make it, and we
make it one hell of a ride.
We believe the machine you sit on can tell
exactly where you stand.
We dont care what everyone else believes.
Amen.
Ef þig langar að fá gæsahúð...
http://www.youtube.com/watch?v=U2olCKnTVPI

Fríða María Reynisdóttir
08. maí 2007 klukkan 15:37
Stærðfræðiprófið búið :D Finnst ég vera komin í sommerferie, en enskan er víst eftir. Þarf að bíða í heila viku eftir síðasta prófinu.. ekki alveg að gera sig. Vil klára þetta strax!
Þórey komst á séns með fabíó í gær, vorum í sakleysi okkar að keyra úr bænum þegar svartur (alltof flottur-) Benz kom askvaðandi og elti okkur hálfa kringlumýrarbrautina.. og einhver rómeó í farþegasætinu heimtaði númerið hjá kellunni. Ég gaf þeim töluna 8... og ekki meir.
Alltaf allt að gerast á kringlumýrarbrautinni (leiðilega langt orð). Hver getur gleymt gæjanum sem reyndi að heilla okkur uppúr skónum með því að keyra sjúklega hratt á hjólinu sínu.. og standa upp á því á ferð (reyndar vorum við að heillast af hjólinu en greyið hefur eitthvað misskilið okkur..). Ég hefði kannski/mögulega/líklega brosað útí annað ef hann hefði dottið, nei samt ekki... auðvitað ekki. Hvað er ég að segja..

Fæ tölvuna mína aftur á eftir, eftir langa og stranga bið! 4 dagar my ass... Búin að bíða í 3 og hálfa viku. Kenni þeim um ef ég fell í einhverju, allt draslið mitt var í tölvunni. Reyndar varð gæjinn í umboðinu allt í einu Mr. Nice Guy þegar ég var búin að bíða í 2 vikur og sagðist vera að byrja í prófum, þá setti hann harða diskinn minn í tölvuna sína og brenndi allt drasl sem ég þurfti á disk.. en ég ætla bara SAMT að kenna þeim um =)
Hinsvegar tók einum degi styttra en þær sögðu mér að bíða eftir hringnum mínum <3
Köben 6. - 10. júní. Can't wait =)
www.newyorker.dkFríða María.
Fríða María Reynisdóttir
17. apríl 2007 klukkan 11:58
Ég skil ekki Ísland.. Steina vertu ánægð með mig.. ég skil það bara ekki heldur.
Ekki misskilja samt, það er fínt að fá frí frá Íslandi en það er alltaf jafn gott að koma heim aftur! Hef prófað að flytja tvisvar til útlanda (dí kei) og komst að því að ég er alveg hrikalega heimakær mannsveskja. Best að vera þarsem manni líður best right? Allavega hef ég fundið þann stað :)
Mig langar ótrúlega hrikalega æðislega mikið til Frakklands.. eða þ.e.a.s. Parísar. Lítill sætur fugl hvíslaði því að mér að frakkar færu að mestu leyti í frí í júlí. Ég væri alveg til í svona eins og á spáni.. vera bara í fríi frá 12-4.. en sleppa því að vinna frameftir :) Hinsvegar yrði ég geðveik á því að vera í fríi og sitja aðgerðalaus í heilan mánuð!
Keypti mér loksins kort í Techno um daginn. Komst að því að ég var í ennþá lélegra formi en ég hélt, var öll í harðsperrum og allt í volli. Plús það að ég náði að brenna mig þvílíkt eftir einn ljósatíma í Sælunni, takk fyrir að láta mig vita að það væru splunkunýjar perur! *andvarp*

FM
Tem þér að hlægja; að hlægja innilega er betra en læknislyf.
Fríða María Reynisdóttir
29. mars 2007 klukkan 17:50
Hæ :)
Hjól farin að sjást á götum borgarinnar og eru þau þar einungis til að gera mig afprýðisama! Farið inn í bílskúr and stay there :)
Ef þið voruð að spá í því hvert sólin fór.. þá setti ég hana í poka ofan í skúffu og geymi hana þangað til ég fer út úr bænum! Liggaliggalá ;) Skal senda ykkur geisla :)
Prufukeyrði Musso jeppa í dag.. spes :)
Ætlaði bara að láta vita að ég er á lífi :)
Enda þetta á broskalli af því ég er ekkert búin að brosa í öllu blogginu :)
FM :)
"Besti vinurinn er sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar."
:)
Fríða María Reynisdóttir
20. mars 2007 klukkan 12:38
Þið vitið hver þið eruð :) ...En ekki taka þessu OF bókstaflega ;) Híhí.
Fríða María Reynisdóttir